13 Nóvember 2015 16:48

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í suðurátt, á móts við Lynghaga. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 59 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Suðurgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.