2 Mars 2010 12:00

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í suðurátt, að Kirkjugarðsstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 151 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Eftirlit lögreglunnar á Suðurgötu var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum við götuna en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.