16 Júní 2011 12:00

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í suðurátt, gegnt Stofnun Árna Magnússonar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 106 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 105. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið lægra, eða 20-30%.