4 Júní 2009 12:00

Þrjátíu og níu voru staðnir að hraðakstri á Suðurgötu í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 39 ökumanna mynduð á Suðurgötu en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, gegnt Stofnun Árna Magnússonar. Á einni klukkustund og tuttugu mínútum, eftir hádegi, fóru 195 ökutæki þessa akstursleið og því óku 20% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Suðurgötu og þá óku 26% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var aðeins meiri umferð um götuna (206 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 65 km/klst.