14 Júní 2019 10:02

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsbraut í vesturátt, á móts við Suðurlandsbraut 26. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 524 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.