2 Nóvember 2015 15:45

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsbraut í vesturátt, á móts við Suðurlandsbraut 26. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 491 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.