4 Desember 2015 17:16

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsbraut í vesturátt, á móts við Suðurlandsbraut 26. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 559 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.