20 Október 2017 16:56

Brot 46 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsbraut í vesturátt, á móts við Suðurlandsbraut 26. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 634 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimm óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.