28 Nóvember 2017 17:58

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsbraut í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsbraut í vesturátt, á móts við Suðurlandsbraut 26. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 582 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.