5 Mars 2014 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í norðurátt, á móts við Hádegismóa. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 217 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. S

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.