1 Ágúst 2019 16:57

Brot 71 ökumanns var myndað á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni  klukkustund, eftir hádegi, fóru 709 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 124.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.