25 Október 2021 10:28

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 517 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 102 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.