22 Nóvember 2021 09:41

Brot 59 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 464 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sjö óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 122.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.