11 Febrúar 2022 17:01

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 330 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.