28 Nóvember 2014 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 216 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 102 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Þess má geta að akstursskilyrði á Suðurlandsvegi í dag voru ekki góð, en þar var mikil rigning og vindur á meðan vöktunin stóð yfir.