9 Mars 2022 11:26

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í  gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, við Rauðhóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 409 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 91 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.