12 Apríl 2022 10:03

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í  gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, við Rauðhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 247 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sólskin og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.