18 Maí 2022 09:58

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeið. Á einni  klukkustund, eftir hádegi, fóru 445 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.