6 Júní 2023 13:15

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, við Hólm. Á einni  klukkustund, fyrir hádegi, fóru 470 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 91 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.