5 Apríl 2016 10:33

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 262 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 115.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.