6 Maí 2016 14:56

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 306 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 102 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112.

Lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum á árinu, en niðurstaðan nú sýnir bæði lægsta brotahlutfallið og lægsta meðalhraða hinna brotlegu í samanburði við fyrri mælingar ársins.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.