30 Júlí 2010 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í suðurátt, að Bláfjallavegi. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 524 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 102 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 114.