29 Ágúst 2016 19:59

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, að Bláfjallavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 327 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Níu óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 129.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.