30 Júlí 2010 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í suðurátt, við Gunnarshólma. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 469 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða tæplega 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 100 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104.