20 Október 2010 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 174 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 101 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði.