9 Ágúst 2017 10:26

Brot 88 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 774 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Átján óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 139.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.