4 Ágúst 2017 10:02

Brot 54 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 527 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 107 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Tólf óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 142.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.