2 Nóvember 2017 13:24

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 349 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 116.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að sól og blautt var á með hraðamælingunni stóð.