31 Maí 2018 17:50

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 297 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 108 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 127.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.