4 Desember 2018 23:39

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 255 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 108 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 128.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.