7 Desember 2009 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, við Elliðakot. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 228 ökutæki þessa akstursleið og því óku frekar fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 113.