13 Ágúst 2015 17:12

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í vesturátt, að Bakkavör. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.