20 Apríl 2016 10:18

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, að Steinavör. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 74 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.