4 Júlí 2018 15:15

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í vesturátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 153 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn,  eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.