30 September 2020 10:53

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, að Steinavör. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.