3 Mars 2022 14:20

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 164 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.