4 Febrúar 2010 12:00

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, gegnt Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 145 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Helmingur hinna brotlegu ökumanna mældist á um 60 km hraða en hinir þrír óku á 66, 73 og 82.