7 Október 2010 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 127 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 60 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd, en í nágrenninu er Mýrarhúsaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.