24 Febrúar 2012 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í norðurátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.