30 Október 2014 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd, á móts við íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71. 

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.