23 Febrúar 2015 17:01

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, að Steinavör. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 76 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.