14 Nóvember 2018 08:15

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í austurátt, á móts við Sundlaugaveg 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 236 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.