14 Ágúst 2019 12:13

Brot 81 ökumanns var myndað á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í austurátt, á móts við Sundlaugaveg 20. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 189 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.