5 Mars 2020 09:49

Brot 65 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í austurátt, á móts við Sundlaugaveg 20. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 171 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að snjókoma var á meðan hraðamælingunni stóð.