16 Maí 2022 14:28

Brot 87 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í vesturátt, við Laugardalslaug. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eð 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.