18 Júlí 2013 12:00

Brot 80 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í vesturátt, að Otrateigi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 164 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 50 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 62. Þess ber að geta að hámarkshraðinn á þessum vegarkafla var fyrir skömmu lækkaður úr 50 í 30.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.