28 Mars 2023 10:36

Brot 90 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í austurátt, við Laugardalslaug. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 137 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 66%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.