17 Febrúar 2014 12:00

Brot 121 ökumanns var myndað á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í vesturátt, á milli Reykjavegar og Otrateigs. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 234 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en sérstök ástæða þótti til að kanna ökuhraða á umræddum stað í ljósi þess að hámarkshraði á þessum vegarkafla var lækkaður í 30 km.