25 Ágúst 2014 12:00

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í austurátt, á móts við Sundlaugaveg 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 255 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.