23 Janúar 2015 15:08

Brot 59 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í austurátt, á móts við Sundlaugaveg 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 215 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.